Kennsla, ráðgjöf og verkefnastjórnun, með áherslu á Innri þróunarmarkmiðin, mannlega færni og velferð einstaklinga og samfélaga.

Vinnustofur, námskeið og ráðgjöf
Innri þróunarmarkmið – námskeið
Sex vikna (1.5 klst. á viku í 6 vikur) námskeið þar sem farið er yfir Innri þróunarmarkmiðin (Inner Development Goals) sem er rammi sem hefur verið þróaður til að styðja einstaklinga, fyrirtæki og samfélög við að ná Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (SDG).
Innri velferð – ytri gróska
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig við getum hlúð að okkar innri veröld og þaðan byggt grundvöll fyrir ytri grósku. Lögð er áhersla á að þátttakendur hljóti þjálfun í að efla innri kraft og kjark ásamt því að huga að eigin vellíðan í sátt við sjálfan sig og aðra. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, verkefnum og æfingum.
Innri þróunarmarkmið, vinnustofa
Vinnustofa þar sem hugmyndafræði Inner Development Goals (IDG) er nýtt sem leiðarljós. Þátttakendur fá tækifæri til að þróa og fjalla um hvernig innri hæfni getur stuðlað að jákvæðum persónulegum og samfélagslegum breytingum.
Núvitund; að finna frið í dagsins önn
Námskeið sem hentar öllum sem vilja finna meiri ró daglegu lífi, draga úr streitu og bæta almenna líðan. Námskeiðið byggir á núvitundarmiðaðri nálgun til sjálfsþekkingar og sjálfsstyrkingar og er unnið út frá metsölubókinni: Finding Peace in a Frantic World.
Öndun og slökun
Á námskeiðinu eru kenndar einfaldar og áhrifaríkar öndunaræfingar sem draga úr streitu og kvíða. Öndunaræfingarnar geta lækkað blóðþrýsting, slakað á spennu og haft jákvæð áhrif á hjarta og æðakerfi.




