Innri þróunarmarkmiðin

6 vikna námskeið – kennt einu sinni í viku, hver tími er 2 klukkustundir. Næsta námskeið hefst 13. október 2026 og er kennt við Símenntun HA og fer skráning fram í gegnum Símenntun HA: Skráning

Innri þróunarmarkmiðin (Inner Development Goals – IDG) er 6 vikna námskeið fyrir einstaklinga, stjórnendur og starfsfólk sem vilja efla innri styrk, vellíðan og hæfni til að takast á við áskoranir samtímans. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig eiginleikar á borð við sjálfsþekkingu, samkennd, hugrekki, sköpunargáfu og innri áttavita geta stuðlað að jákvæðum breytingum í einkalífi, starfi og samfélagi.

Námskeiðið byggir á alþjóðlega IDG-rammanum sem þróaður var til að styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG) með áherslu á hvaða innri eiginleika þarf að leggja rækt við til að styðja við ytri breytingar. Kennslan samanstendur af fræðslu, umræðum, verkefnum og æfingum sem styðja þátttakendur í að lifa og starfa með meiri meðvitund, jafnvægi og tilgangi.

Á námskeiðinu er farið yfir:

Námskeiðið hentar öllum sem vilja staldra við, dýpka tengingu við sjálfa sig og lifa meðvitaðra lífi.

Heyrðu í okkur til að bóka námskeið fyrir þinn hóp!