VinnuVeglyndi
Núvitundarmiðuð nálgun til að auka vellíðan og sjálfbærni á vinnustað.
Markmið námskeiðsins eru að:
- hafa jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu starfsfólks.
- auka starfsánægju og frumkvæði starfsfólks.
- sjálfbærþróun og vernd umhverfisins séu höfð að leiðarljósi í starfseminni.
- starfsfólk taki virkan þátt í að rekstur og þjónusta hafi sem minnst umhverfisáhrif.
- bjóða upp á hagkvæmar og einfaldar leiðir til að auka vellíðan á vinnustöðum.
Fyrirkomulag:
Námskeiðið er 1 ½ klst í senn og kennt einu sinni í viku yfir átta vikur. Hver tími felur í sér fræðslu, æfingar, verkefni og umræður. Æskilegt er að þátttakendur stundi um 10-20 mínútna æfingar daglega á meðan að námskeiðinu stendur. Námskeiðið getur verið á vinnustaðnum eða í gegnum fjarfundarbúnað.
Um námskeiðið:
Námskeiðið felur í sér færniþjálfun til að auka vellíðan og takast á við áskoranir daglegs lífs. Tilgangur námskeiðsins er margþættur en miðar sérstaklega að því að auka starfsánægju og virkni starfsólks þegar kemur að umhverfisstefnu vinnustaðarins. Aðferðin er hagkvæm og hefur möguleika til langtímavirkni.
- Núvitund á vinnustöðum er þaulrannsökuð aðferð til að efla starfsumhverfið enn frekar. Sýnt hefur verið fram á að núvitund getur dregið úr streitu, haft jákvæð áhrif á samskipti, bætt heilsu og almenna líðan ásamt því að draga úr líkum á kulnun. Iðkun núvitundar eflir einbeitingu og hefur jákvæð áhrif á frammistöðu starfsfólks. Núvitundaræfingar þar sem áhersla er lögð á samkennd eru sérstaklega áhrifaríkar meðal starfsfólks í heilbrigðisþjónustu.
- Áhugi og þátttaka starfsfólks skiptir sköpum við innleiðingu umhverfisstefnu. Nýlegar rannsóknir sýna að núvitundariðkun geti haft umtalsverð áhrif á umhverfisvitund og umhverfishegðun. Á námskeiðinu er farið í æfingar og verkefni til að valdefla starfsfólk í að vinna að umhverfismálum og sjálfbærnistefnu vinnustaðarinns út frá eigin innra gildismati og hugarfari. Rannsóknir á námsefninu sýna að 43% þátttakenda finna aukna trú á eigin getu til að hafa áhrif og 70% þátttakenda fundu leiðir til að innleiða meiri sjálfbærni á sínum vinnustöðum.
Kennari:
Þuríður Helga Kristjánsdóttir er núvitundarkennari með áherslu á núvitundarmiðaða nálgun á samfélagslegar áskoranir. Þuríður rekur fyrirtækið Veglyndi sem sérhæfir sig í ráðgjöf og þjónustu fyrir vinnustaði, hópa, stjórnendur og einstaklinga. Hún er með MA í mannauðsstjórnun, BA í myndlist og hefur mikla reynslu af stjórnunarstörfum, (fjármála-, verkefna- og mannauðsstjórnun). Þuríður hefur sjálf iðkað jóga, hugleiðslu og núvitund í fjölmörg ár.
Ítarefni og heimildir
- Caring for others without losing yourself: An adaptation of the Mindful Self‐Compassion Program for Healthcare Communities
- Mindfulness and sustainability
- Mindfulness-Based Programs in the Workplace: a Meta-Analysis of Randomized Controlled Trials
- Mindfulness, Self-Compassion, and Empathy Among Health Care Professionals: A Review of the Literature
- Revolutionising sustainability leadership and education: addressing the human dimension to support flourishing, culture and system transformation

