Yoga Nidra
Hvíldarjóga er þýðing á Yoga Nidra, ævafornri hugleiðsluaðferð sem í beinni þýðingu merkir jógískur svefn. Nidra merkir svefn og yoga eining/jafnvægi, sameining við okkar innsta eðli. Hvíldarjóga vísar til þess markmiðs að hvílast, í algjöru aðgerðarleysi og upplifa þannig einingu við okkur sjálf.
Hvíldarjóga kemur á djúpri slökun og er í raun ein tegund hugleiðslu. Aðferðin nýtir eiginleika svefns til þess að endurnæra og hvíla líkama og huga. Hvíldarjóga fer fram liggjandi þar sem þátttakendur eru leiddir í gegnum öndunar- og athyglisæfingar, sem miða að því að virkja róandi hluta taugakerfisins. Smám saman hægist á líkamsstarfseminni, blóðþrýstingur og púls lækkar. Dvalið er á milli svefns og vöku og líkamlegu slökunarástandi er náð. Í hvíldarjóga virkjum við meðfædda hæfileika líkamans til að endurnærast og koma á jafnvægi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ávinningur af hvíldarjóga er margþættur, svo sem:
- Eflir viðnám við streitu.
- Bætir nætursvefn.
- Styrkir framheila starfsemina.
- Styður við aðra hugleiðslu og núvitundaræfingar.
SANKALPA
Hluti af því sem gerir Yoga Nidra áhrifamikið er það sem kallað er Sankalpa, sem er ásetningur eða heit. Fyrirheit sem við förum með í hljóði og kemur beint frá hjartanu. Fyrirheitið er sagt sem jákvæð staðhæfing um okkur sjálf. Það er haft í nútíð líkt og það hafi þegar raungerst í lífi okkar, t.d.,,ég hugsa af kærleika og samkennd til mín og annarra” eða,,mér líður vel með sjálfan mig og samþykki mig fullkomlega eins og ég er”. Þegar farið er með fyrirheitið er ímyndunaraflið virkjað með því að sjá fyrir sér að það hafi þegar orðið að veruleika, tilfinningin sem færist yfir þegar heitið er orðið að lifandi sannleika er einnig kölluð fram.
Hægt er að skipta Sankalpa annars vegar í megin fyrirheit og hinsvegar í tímabundið fyrirheit.
Megin fyrirheit
Til að setja sér megin fyrirheit þarf að hlusta eftir einlægri innri ósk. Þessi ósk getur verið til staðar þó að þú komir ekki orðum að henni, en náir þú að koma óskinni í orð þá getur hún orðið enn öflugri og verið þér kærleiksfullt leiðarljós í gegnum lífið.
Tímabundi fyrirheit
Tímabundin fyrirheit geta hjálpað okkur að takast á við aðstæður sem koma upp í lífi okkar hverju sinni og verið góð leið til að vísa okkur þangað sem við viljum fara.Til þess að finna fyrirheitið er gott að velta því gaumgæfilega fyrir sér hvers vegna viljum við það sem erum að biðja um. Hvaða þrá býr þar að baki?Það er hægt að byrja á einfaldri ósk, t.d. ég vil vera í góðu formi, og þegar sú hugsun hefur myndast að leita þá enn dýpra, er það heilbrigði, frelsi, eða að finna fyrir ánægju með eigin líkama sem býr að baki. Þá væri hægt að mynda fyrirheit sem byggir á því, t.d.
- ég tek ákvarðanir sem stuðla að eigin heilbrigði
- ég er sátt/ur við sjálfan mig eins og ég er
- ég sýni mér virðingu og kærleika
Yoga allows you to find an inner peace that is not ruffled and riled by the endless stesses and struggles of life. B.K.S Iyengar
