Hugleiðsla og öndun

Helgarnámskeið í hugleiðslu, núvitund og jógaöndun

Á námskeiðinu lærir þú undirstöðuatriði í hugleiðslu, núvitund og jógískri öndun (pranayama). Hugleiðsla getur dregið úr streitu og haft jákvæð áhrif á almenna líðan, í gegnum hugleiðslu leitumst við við að dýpka tenginguna við okkur sjálf. 

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja tileinka sér einfaldar og áhrifaríkar aðferðir sem efla innri ró og einbeitingu.

Á námskeiðinu er farið yfir:

  • Grunnatriði hugleiðslu og núvitundar
  • Grunnatriði jógaöndunar
  • Rannsóknir á áhrifum hugleiðslu
  • Hagnýtar æfingar sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi

Hentar fyrir:
Námskeiðið er opið bæði byrjendum og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á hugleiðslu, núvitund og öndun. Hvort sem þú ert að leita að ró í dagsins önn eða leiðum til að efla persónulegan þroska, þá getur þetta námskeið stutt við þína vegferð.

Lengd og fyrirkomulag:
Námskeiðið er kennt frá 13-16 laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. september 2025 og samanstendur af leiddum hugleiðslum, öndunaræfingum, fræðslu og umræðum.

Kennari:
Þuríður Helga Kristjánsdóttir en hún hefur stundað hugleiðslu um árabil og er einnig með formlega menntun í hugleiðslu, jóga og pranayama öndun.

Skráning:

Veglyndi@veglyndi.is

Verð: 18.500 kr.